
Hönnun og bygging
Eitt fyrirtæki sér um allt ferlið. Það styttir boðleiðir og heldur tímaáætlun.
Við förum yfir starfsemina með þér og hönnum hús sem hentar henni og lóðinni. Arkitekta-, burðarþols-, lagna- og raflagnateikningar ásamt þrívíddarlíkani.
Eigin jarðvinnudeild og tækjafloti. Gröftur, fyllingar, lagnir og frágangur lóðar.
Stálgrindarhús með samlokueiningum frá Ruukki, gluggum og hurðum frá Schüco og iðnaðarhurðum og gámadokkum frá Hörmann.
Einn tengiliður frá fyrsta hönnunarfundi til afhendingar. Verkefnastjórar frá Íslandi, Póllandi og Lettlandi, svo samskipti á verkstað ganga hratt.
Bygginga-, staðar- og verkstjórar ásamt eigin iðnaðarmönnum, þar á meðal pípulagningamönnum. Stýrir verkinu á staðnum frá jarðvinnu til afhendingar.
Hönnunarstjóri og tilboðsteymi sem greinir þarfir, samræmir hönnuði og gerir kostnaðar- og tilboðsáætlanir.
Finnur lóðir, vinnur skipulag og leyfi og undirbýr ný verkefni.
Eigin tækjafloti og verkstæði. Við þurfum ekki að bíða eftir krana eða gröfu.
Viðskiptavinir
Húseigandi hefur lagt sig í líma við að uppfylla kröfur okkar og hvergi sparað við val á efni og búnaði. Gæði vinnu, frágangur og umgengni hafa verið til algerrar fyrirmyndar, jafnt í húsnæðinu sjálfu og á lóðinni.
Við höfum átt í árangursríku samstarfi við Eignabyggð um þróun, hönnun og byggingu nútíma vöru- og iðnaðarhúsnæðis undanfarin ár. Teymið er lausnamiðað og kappsamt að ná árangri.
Það var ljóst snemma í ferlinu að Brynjólfur leitast við að gera hlutina vel og leggur áherslu á vandvirkni. Samningar, verkferlar og tímaáætlanir stóðust vel, og skilalýsing að innan sem utan einnig.
Hafa samband
Sendu fyrirspurn eða hringdu beint í okkur.
Skrifstofa
Álfabakki 12, 2. hæð
109 Reykjavík